Í MJÖG GRÓFUM DRÁTTUM
Meðfram náminu tókum ég og vinur minn bílskúr á leigu í nágrenni við skólann og buðum helstu auglýsingastofum og fyrirtækjum þess tíma uppá þjónustu okkar við skiltagerð og gluggaskreytingar. Eftir skólagönguna fór ég að vinna á minni auglýsingastofum eins og “Studio X” sem Halli bróður Ladda stýrði, “Midas” sem var í eigu Birgis heitins Andréssonar og “Gauksa” sem Jóhannes nokkur átti og rak. Fyrstu kynni mín af sjónvarpsvinnslu var þegar mér bauðst að gera leikmynd fyrir verkefnið “18 rauðar rósir” sem Ágúst Baldursson leikstírði fyrir Alþýðuflokk Jóns Baldvins þar sem Stefán Hilmarson steig sín fyrstu skref á framabrautinni. Leikmyndagerðin tókst það vel, að ég ílengdist í leikmyndahönnun og smíðum hjá Sagafilm næstu tvö árin. Þaðan lá leið mín á auglýsingastofuna “Octavo” sem sameinaðist síðar “Svona gerum við” og úr varð “Íslenska auglýsingastofan”. Þar vann ég næstu árin eða þangað til ég fékk óbilandi áhuga á sjónvarpsauglýsingagerð og réð mig til vinnu á “Stöð 2”. Þar gerði ég tilraunir á sjónvarpsauglýsingum, myndböndum og dagskrárkynningum. Fékk líka tækifæri til að læra af og vinna með mér reyndari mönnum eins og Agli Eðvarðssyni og Ágústi Baldursyni sem voru stundum fengnir í sérverkefni. Eftir fjögur góð ár þar réði ég mig á “Gæða grafík” og vann á svokallað “PaintBox”, sem var fyrsta grafíska tölva landsins. Þar var ég á annað ár að þjóna auglýsingastofum og framleiðslufyrirtækjum áður en ég fór að starfa sjálfstætt við að leikstýra sjónvarpsauglýsingum. Eftir nokkur ár sjálfstætt starfandi með mjög góðum árangri geng ég til liðs við “Hugsjón” framleiðslufyrirtæki þar sem ég gerðist einn af þremur eigendum. Fjórum árum síðar yfirgef ég það félag og stofna “BaseCamp” framleiðslufyrirtæki með tveimur félögum en það fyrirtæki starfaði í okkar umsjá í um tvö ár við auglýsingaframleiðslu og viðburðaþjónustu eða þangað til við seldum það. Skömmu eftir söluna fór ég aftur að vinna sjálfsstætt við leikstjórn og grafíska hönnun. Snemma árs 2013 var ég ráðinn sem Hönnunarstjóri á auglýsingastofuna “HN Markaðssamskipti”. Á þeim tíma breyttum við ásýnd HN algerlega með nýju logoi og nýrri heimasíðu og á þessum tæpu 2 árum unnum við 3 Lúðra og fengum 6 tilnefningar. Sem er gott miðað við að áður hafði HN aðeins hlotið 5 Lúðra frá árinu 1990 :-) Núna starfa ég sjálfstætt við auglýsingagerð og hugmyndavinnu ásamt því að hanna og stýra viðburðum. Samferða vinnu minni hér heima hafði ég verið að fara til útlanda að leikstýra sjónvarpsauglýsingum eða frá árinu 2002. Ég hef verið lánsamur í samstarfi mínu við auglýsingastofur og fyrirtæki í gegnum tíðina og unnið til fjölda verðlauna. Með leikstjórninni hef ég löngum verið að hanna og gera prent- og netauglýsingar, setja upp viðburði og stjórnað upptökum á sjónvarpsþáttum.